Sjálfbærniuppgjör
Bera hf. (áður Ölgerðin) hefur unnið markvisst að sjálfbærni frá árinu 2013 og gefið út reglulega skýrslu um stöðu, árangur og markmið félagsins á því sviði. Sjálfbærniuppgjör félagsins fyrir árið 2025 er unnið í samræmi við VSME leiðbeiningar Evrópusambandsins (Voluntary Sustainability Reporting Standard for SMEs), sem byggja á meginreglum ESRS staðlanna samkvæmt CSRD tilskipuninni.
Í uppgjörinu er jafnframt vísað til viðmiða GRI (Global Reporting Initiative), UFS-leiðbeininga Nasdaq frá 2019, meginreglna UN Global Compact og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Sjálfbærniskýrslan nær til samstæðu Beru og veitir heildstæða og gagnsæja mynd af umhverfis-, félags- og stjórnarháttum (UFS/ESG) félagsins, árangri þess og helstu áherslum til framtíðar. Við teljum að skýrslan endurspegli á réttan og sanngjarnan hátt stöðu félagsins og þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að ná markmiðum um sjálfbæran rekstur á komandi árum.