8. september 2026
Ölgerðin tekur við umboði Schloss Johannisberg á Íslandi
Ölgerðin hefur tekið við umboði fyrir þýska vínhúsið Schloss Johannisberg, eitt elsta og virtasta Riesling-vínhús heims. ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
Ölgerðin hefur tekið við umboði fyrir þýska vínhúsið Schloss Johannisberg, eitt elsta og virtasta Riesling-vínhús heims. Saga vínhússins nær yfir 1.200 ár og þar hefur Riesling-þrúgan verið ræktuð frá árinu 1720.
Schloss Johannisberg hefur jafnframt gegnt mikilvægu hlutverki í þróun og sögu Riesling-vína, meðal annars með tilkomu Spätlese-vína. Vínhúsið nýtur mikillar alþjóðlegrar viðurkenningar og var nýverið valið besta vínhús Evrópu og annað besta vínhús heims á lista World’s 50 Best Vineyards 2025.