Aftur í öll störf

Starf í áfyllingu - Egilsstaðir

Við leitum að ábyrgðarfullri, hraustri og duglegri manneskju til að sjá um að fylla á og framstilla drykkjarvörur Ölgerðarinnar í hlutastarfi á Egilsstöðum. Vinnutími er þrír tímar á dag virka daga og önnur hver helgi.


Viðkomandi er fulltrúi þeirra vörumerkja sem hún annast og ber ábyrgð á að vörurnar séu framsettar á sem söluvænlegastan hátt í verslunum á svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Að þjónusta viðskiptavini og mæta þörfum þeirra
Að framstilla drykkjarvöru á faglegan hátt
Að fylla á hillur, kæla og framstillingar í verslunum
Að hámarka sölutækifæri og lágmarka rýrnun í samvinnu við sölumenn
Að tryggja fagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk

Hæfniskröfur:

Bílpróf
Sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, áreiðanleiki og framsækni
Hreint sakarvottorð

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.

Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík


Umsóknarfrestur frá:

20. október 2026

Umsóknarfrestur til:

03. nóvember 2026