Aftur í öll störf

Áfylling sjálfsala

Við leitum eftir duglegri og jákvæðri manneskju til að sjá um áfyllingu á sjálfsölum fyrir Ölgerðina.

Kostur ef umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Áfylling sjálfsala
Að hámarka sölutækifæri og lágmarka rýrnun í samvinnu við viðskiptastjóra
Dagleg þrif á tækjum
Önnur tilfallandi störf í samráði við viðskiptastjóra sjálfssala

Hæfniskröfur:

Rík þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum
Stundvísi og góð framkoma
Góð samskiptahæfni
Samviskusemi og jákvæðni
Geta unnið undir álagi
Reglusemi og snyrtimennska
Bílpróf
Hreint sakarvottorð

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.

Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík


Umsóknarfrestur frá:

31. ágúst 2026

Umsóknarfrestur til:

14. september 2026

Hafa samband:
starf@olgerdin.is