8. september 2026
Ölgerðin tekur við umboði Schloss Johannisberg á Íslandi
Ölgerðin hefur tekið við umboði fyrir þýska vínhúsið Schloss Johannisberg, eitt elsta og virtasta Riesling-vínhús heims. ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
JTV fyrir hönd Beru hf, kt. 420369-7789, auglýsir eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á um 23.000 m2 vöruhúsi á Hólmsheiði í Reykjavík.
Verkið felur í sér fullnaðarhönnun og byggingu á vöruhúsi sem mun m.a. hýsa sjálfvirkt vöruhús, kæli- og frystigeymslur, vörumóttöku og skrifstofur.
Helstu verkþættir eru:
• Fullnaðarhönnun húss og lóðar
• Aðstöðusköpun og jarðvinna
• Uppsteypa og reising burðarvirkis
• Frágangur utanhúss
• Frágangur innanhúss, þ.m.t. rafkerfi, lagnakerfi og kæli- og frystikerfi
• Frágangur lóðar
Forvalsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 31. ágúst 2026. Áhugasamir skulu hafa samband við Fjalar Hauksson hjá JTV ehf með því að senda tölvupóst á netfangið fjalar@jtv.is og gefa upp nafn, nafn fyrirtækis, síma og netfang og fá í kjölfarið aðgang að forvalsgögnum.
Skilafrestur umsókna er 28. september 2026, klukkan 13.