Tröll ferðaþjónusta kaupir Ísbúð Vesturbæjar

26. júní 2026

Ferðaþjónustufyrirtækið Tröll ferðaþjónusta hefur náð samkomulagi um kaup á Ísbúð Vesturbæjar af Kjarnavörum, dótturfélagi Beru.Heildarvirði Ísbúðar Vesturbæjar í viðskiptunum var 215 milljónir króna, að því er kemur fram í afkomutilkynningu Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.Bera ákvað að setja Ísbúð Vesturbæjar í söluferli í byrjun árs eftir að hafa eignast félagið við 4 milljarða króna kaup á Kjarnavörum í lok síðasta árs.