24. júlí 2026
Komdu þér á kortið með COLLAB og 66°NORÐUR
Hvert fór sumarið með þig? Í sumar kortleggjum við ferðalög landsmanna um allt land. Vertu með, settu ferðalagið þitt á ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
matvara
Danól hefur hlotið þrjár tilnefningar til Lúðurs 2025, íslensku auglýsingaverðlaunanna. Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu og því sterka samstarfi sem liggur að baki verkefnunum.
Í flokki Veggspjalda og skilta hlaut KitKat klukkan tilnefningu. Verkefnið var unnið í samstarfi við auglýsingastofuna ENNEMM og vakti athygli fyrir skýra og áhrifaríka framsetningu.
Í flokki Umhverfisauglýsinga hlaut Milt tilnefningu fyrir auglýsingu fyrir fljótandi þvottaefni. Verkefnið var unnið með Cirkus auglýsingastofu og sameinar skapandi nálgun og sterka tengingu við vörumerkið.
Í flokki Stafrænnar auglýsingar hlaut verkið Rætur og rennsli fyrir Lavazza tilnefningu, einnig í samstarfi við Cirkus auglýsingastofu. Verkefnið byggir á vandaðri hugmyndavinnu og markvissri miðlun í stafrænu umhverfi.
Við þökkum samstarfsaðilum okkar fyrir frábært samstarf og öllum þeim sem komu að verkefnunum fyrir metnað og fagmennsku. Tilnefningarnar eru mikilvæg viðurkenning á því öfluga starfi sem unnið er hjá Danól og með okkar vörumerkjum.