3. júní 2026
OPAL Hlaupskot með Sítrónubragði er mætt á svæðið
Opal skiptir um gír í sumar. Í þetta skiptið fær lakkrísinn frí og hlaupið tekur sviðið með ljúffengu sítrónubragði. Opa ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
Ölgerðin hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026. Verðlaunaafhendingin fór fram í Hörpu síðastliðinn miðvikudag þar sem framúrskarandi fyrirtæki voru heiðruð. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem skara fram úr þegar kemur að starfsánægju, fyrirtækjamenningu og góðum vinnustað og er því sérstaklega dýrmæt þar sem hún endurspeglar upplifun og viðhorf starfsfólksins sjálfs.
Þessi árangur er fyrst og fremst starfsfólki að þakka. Daglega sýnir hópurinn okkar metnað, fagmennsku og samheldni sem gerir fyrirtækið að einstökum vinnustað. Það er samvinna, jákvætt viðmót og viljinn til að gera sífellt betur sem liggur að baki þessari viðurkenningu.
Við erum ótrúlega stolt af þessum áfanga og hlökkum til að halda áfram að byggja upp vinnustað þar sem fólk dafnar, þróast og hefur gaman af því að mæta til vinnu á hverjum degi.
Innilega til hamingju öll – þessi viðurkenning er okkar allra!