24. júlí 2026
Komdu þér á kortið með COLLAB og 66°NORÐUR
Hvert fór sumarið með þig? Í sumar kortleggjum við ferðalög landsmanna um allt land. Vertu með, settu ferðalagið þitt á ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
Júlía Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar. Júlía Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar. Júlía, sem er 29 ára gömul, hóf feril sinn hjá Ölgerðinni beint að loknu verkfræðinámi árið 2017 og hefur unnið við fjölmörg störf hjá fyrirtækinu síðan. Hún starfaði við framleiðslu, umbótastjórnun, upplýsingatækni og var nú síðast leiðtogi stafrænnar þróunar Ölgerðarinnar.
„Ég tek við góðu búi frá Margréti Arnardóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra, og hlakka mikið til að starfa með þeim öfluga hópi sem er á framleiðslu- og tæknisviði Ölgerðarinnar. Ég er spennt að takast á við nýjar og krefjandi áskoranir og er þakklát fyrir tækifærið og það traust sem mér er sýnt,“ segir Júlía.
Júlía er með M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.S. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur þegar hafið störf sem framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni.