21. október 2026
Boli áfengislaus
Nú er loksins hægt að njóta Bola með sínu þroskaða og þétta bragði í sannkallaðri gleðivímu. Bruggmeistararnir gefa enga ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
fyrirtæki
Nú í morgun gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðar Egils Skallagrímssonar.
Húsleitin varðar rannsókn eftirlitsins á meintum brotum Ölgerðarinnar á reglum um bann við misnotkun á markaðsráðandi stöðu, í kjölfar kvartana samkeppnisaðila.
Stjórnendur hafa engar upplýsingar um að brot hafi átt sér stað í starfsemi félagsins. Rík áhersla er lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri þess og er það hluti af þjálfun starfsfólks Ölgerðarinnar að fá fræðslu um það hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni.
Ölgerðin og Bera munu aðstoða eftirlitið við athugun sína og vona að rannsókn þess ljúki sem fyrst. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.