3. júní 2026
OPAL Hlaupskot með Sítrónubragði er mætt á svæðið
Opal skiptir um gír í sumar. Í þetta skiptið fær lakkrísinn frí og hlaupið tekur sviðið með ljúffengu sítrónubragði. Opa ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
ný vara
Ný og spennandi vefverslun COLLAB opnaði með látum þar sem silfuröskjur með sex ófáanlegum bragðtegundum af COLLAB seldust upp á mettíma. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessu verkefni en í leyniboxinu er að finna fimm bragðtegundir sem hafa verið uppseldar um langa hríð og ein leynidós sem með bragðtegund sem enn hefur ekki verið sett á markað.
Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastjóri COLLAB, segir að þessi miklu viðbrögð hafi komið skemmtilega á óvart.
„Við fáum reglulega óskir um að ákveðnar bragðtegundir verði settar aftur í framleiðslu og sumum er mikið niðri fyrir varðandi ákveðnar bragðtegundir. Þetta er okkar aðferð til að svara þessum tryggu viðskiptavinum. Þessi miklu viðbrögð sýna svart á hvítu að COLLAB-samfélagið er mjög sterkt á Íslandi sem er auðvitað frábært, enda er þetta íslenskt vörumerki sem byggir á nýsköpun og íslenskum hráefnum“, bætir Vaka við. „Við hlökkum til að heyra hvað þeim sem náðu sér í leyniboxið finnst um leynidósina“, segir Vaka en neitar staðfastlega að gefa upp hvaða bragðtegund leynist í þeirri leyndardómsfullu dós.
Eins og áður sagði er vefverslun drykkjarins komin í loftið á slóðinni collab.is og er þar m.a. hægt að fá boli, sokka og annan varning sem tengist COLLAB - meðan birgðir endast.