21. október 2026
Boli áfengislaus
Nú er loksins hægt að njóta Bola með sínu þroskaða og þétta bragði í sannkallaðri gleðivímu. Bruggmeistararnir gefa enga ...
Um okkur
Vinnustaðurinn
Fjárfestar
Sjálfbærni
ný vara
Borg Brugghús og Kaleo hafa tekið höndum saman um nýjan samstarfsbjór, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds (2021). Hey Gringo er léttur og ferskur mexíkóskur lagerbjór með aðeins 34 kaloríur í hverjum 100 ml. Að sögn Árna Theodórs Long, bruggmeistara hjá Borg Brugghúsi, var markmiðið að skapa alvöru sumarstemningu með bragðmiklum en léttum bjór. Kaleo kom einnig að þróun bjórsins og tók virkan þátt í bruggferlinu með bruggarateymi Borgar Brugghúss.